Af aðalfundi Félags háskólakennara 19. maí 2016

Á aðalfundi Félags háskólakennara sem haldinn var þann 19. maí var ný stjórn kosin.

Michael Dal, dósent á menntavísindasviði var kosinn formaður til eins árs.

Aðrir stjórnarmenn til tveggja ára voru kosnir:
Helgi Áss Grétarsson, dósent lagadeild.
Hulda Þórisdóttir, lektor stjórnmálafræðideild.
María Ásdís Stefánsdóttir, vefstjóri markaðs- og samskiptasviðs.

Á aðalfundi 2015 voru kosnir til tveggja ára:
Ármann Höskuldsson, vísindamaður Jarðvísindastofnun.
Baldvin Zarioh, deildarstjóri Vísinda- og nýsköpunarsvið.
Guðmundur I. Guðmundsson, Landsbókasafn – háskólabókasafn.

Skoðunarmenn voru kosnir, Íris Davíðsdóttir, verkefnastjóri VON og Sigríður Jónsdóttir, fræðimaður á Raunvísindastofnun.
Í kjörnefnd voru kosin, Kristín Harðardóttir forstöðumaður menntavísindastofnun, Sverrir Guðmundsson, verkefnastjóri Vísinda- og nýsköpunarsviðs og Sigríður Jónsdóttir, fræðimaður á Raunvísindastofnun.

Þá var samþykkt lagabreytingartillaga um að breyta orðalagi 7. greinar laga, úr árgjaldi í félagsgjald.
Greinin orðast því svo:
Félagsgjald félagsmanna skal ákveðið á aðalfundi ár hvert.  Heimilt er stjórn að endurgreiða félagsmanni félagsgjöld allt að 10 ár aftur tímann vegna tímabundins launamissis eða annarra fjárhagslegra ástæðna.

Einnig var samþykkt viðbót við 8. grein reglna um kjaradeilusjóð og orðast svo:
„Heimilt er að greiða úr sjóðnum kostnað vegna undirbúnings og framkvæmdar verkfalla, þó ekki venjulegan samningskostnað né þóknun fyrir verkfallsvörslu.  Einnig er heimilt að styrkja önnur stéttarfélög sem eiga í kjaradeilum eða styrkja aðrar aðgerðir sem tengjast kjaradeilum.
Ennfremur er heimilt að greiða úr sjóðnum til að styrkja rekstrargrundvöll Starfsþróunarsjóðs Félags háskólakennara (SFH) skv. bókun 4 í kjarasamningi félagsins annars vegar og fjármálaráðherra hins vegar, dags. 16. nóvember 2015.“

Stjórn Félags háskólakennara lagði fram tillögu um stofnfé til Starfsþróunarsjóðs (SFH), sem var samþykkt:
„Stjórn Félags háskólakennara leggur til að lagt verði til stofnfé í nýjan Starfsþróunarsjóð Félags háskólakennara (SFH), sem samið var um í kjarasamningi félagsins og fjármálaráðherra dags. 16. nóvember 2015.
Lagt er til að kr. 22.000.000 verði varið úr kjaradeilusjóði félagsins í stofnfé í Starfsþróunarsjóð Félags háskólakennara (SFH).“
 

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is