Desemberuppbót 2020

Persónuuppbót (desemberuppbót) á árinu 2020 er kr. 94.000.  Starfsmaður sem er við störf í fyrstu viku nóvembermánaðar skal fá greidda persónuuppbót 1. desember ár hvert miðað við fullt starf tímabilið 1. janúar til 31. október.  Hafi starfsmaðurinn gegnt hlutastarfi eða unnið hluta úr ári, skal hann fá greitt miðað við starfshlutfall á framangreindu tímabili.  Á sama hátt skal einnig starfsmaður sem látið hefur af starfi en starfað hefur samfellt á a.m.k. 3 mánuði (13 vikur) á árinu, fá greidda perósnuuppbót, miðað við starfstíma og starfshlutfall  Sama gildir þótt starfsmaður sé frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu stofnunar lýkur eða í allt að 6 mánuði vegna fæðingarorlofs.  Áunnin persónuuppbót skal gerð upp samhliða starfslokum.

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is