Aðalfundur Félags háskólakennara 2023

Aðalfundur 2023

Félags háskólakennara, félag háskólamenntaðra starfsmanna Háskóla Íslands og tengdra stofnana,

verður haldinn fimmtudaginn 11. maí frá kl. 15:30 -17:30

á háskólatorgi stofa HT-103

Dagskrá:

  1. Lögð fram ársskýrsla.
  2. Lagðir fram kannaðir reikningar félagsins skv.alþjóðlegum stöðlum.
  3. Ákveðið félagsgjald og hlutdeild félagsgjalda í kjaradeilusjóð sbr. 3. gr. reglna um sjóðinn.
  4. Tillögur um lagabreytingar, ef fram koma.
  5. Kosin stjórn, sbr. 8. grein.
  6. Kosin kjörnefnd, sbr. 8. grein.
  7. Kosnir tveir skoðunarmenn reikninga.
  8. Önnur mál.

8. grein laga félagsins er svohljóðandi:

„Stjórn félagsins skal skipuð átta mönnum, formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera, þremur meðstjórnendum auk eins meðstjórnanda til viðbótar sem er fulltrúi launþega á styrk sbr. 4. tl., 3. gr. þeir eru kjörnir skriflega, ef þess er óskað. Formann skal kjósa sérstaklega, en að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum. Stjórnarkjöri skal haga þannig, að árlega sé kosinn formaður, þrír stjórnarmenn úr hópi félagsmanna sbr. tl. 1 – 3, 3. gr. og einn fulltrúi launþega á styrk sbr. tl. 4, gr. 3. Formaður er kjörinn til eins árs, fulltrúi launþega á styrk til eins árs og aðrir stjórnarmenn til tveggja ára.

Á aðalfundi skal kjósa þriggja manna kjörnefnd, sem starfar til loka næsta aðalfundar. Tilkynningar um framboð til stjórnar skulu berast kjörnefnd ekki síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund. Hafi ekki borist næg framboð skal kjörnefnd hlutast til um að afla nauðsynlegs fjölda framboða. Framboð til stjórnar sem kosið er um á aðalfundi skal birtast með fundarboði til aðalfundar.“

Stjórn Félags háskólakennara óskar eftir framboðum til stjórnar og minnir á að tilkynningar um framboð skulu berast kjörnefnd eigi síðar en 2 vikum fyrir aðalfund eða fyrir fimmtudaginn 27. apríl 2023.

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is