Málþing um kjör og líðan starfsfólks HÍ og HA

Ágæta félagsfólk,

Í aðdraganda kjaraviðræðna boðar Félag Háskólakennara á Akureyri, Félag háskólakennara og Félag prófessora við ríkisháskóla til málþings um málefni félagsfólks sem haldið verður föstudaginn 1. mars klukkan 14:00 – 16:30 Odda (O-101). Viðburðinum verður streymt og í þinglok verður boðið upp á léttar veitingar. Við hvetjum allt starfsfólk í stjórnsýslu og akademíu til þátttöku.

Dagskrá málþings FHA, FH og FPR, 1. mars 2024 í Odda (O-101)

14:00 Fundarstjóri setur þingið – Kolbrún Halldórsdóttir formaður BHM

14:10 Laun í háskólum á Íslandi – sitjum við eftir?  Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur BHM

14:30 Kaup og kjör félagsfólks – Sigrún Ólafsdóttir formaður Félags prófessora við ríkisháskóla

14:50 Starfsánægja og líðan starfsfólks opinberra háskóla – Hjördís Sigursteinsdóttir formaður Félags háskólakennara á Akureyri

15:10 Kaffihlé

15:20 Kulnun meðal starfsfólks háskóla – Ragna Benedikta Garðarsdóttir stjórn Félags prófessora við ríkisháskóla

15:40 Starfsaðstaða doktorsnema og nýdoktora – Svava Dögg Jónsdóttir, doktorsnemi og formaður FEDON og Valgerður Þorgerðar Pálmadóttir nýdoktor og stjórnarkona í FEDON

15:50 Pallborðsumræður um stöðu og framtíð íslensks háskólastarfs

16:30 Fundarstjóri slítur þinginu og býður upp á léttar veitingar

 

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is