Aðalfundur Félags háskólakennara

 

Félags háskólakennara, félag háskólamenntaðra starfsmanna

Háskóla Íslands og tengdra stofnana,

verður haldinn fimmtudaginn 16. maí frá kl. 15:30 – 17:30,

í EDDU, húsi Árnastofnunar, Arngrímsgata 5, 107 Rvk.

Fyrirlestrarsalur á jarðhæð.

Dagskrá:

  1. Lögð fram ársskýrsla.
  2. Lagðir fram kannaðir reikningar félagsins skv. alþjóðlegum stöðlum.
  3. Ákveðið félagsgjald og hlutdeild félagsgjalda í kjaradeilusjóð sbr. 3. gr. reglna um sjóðinn.
  4. Tillögur um lagabreytingar, ef fram koma.
  5. Kosin stjórn, sbr. 8. grein.
  6. Kosin kjörnefnd, sbr. 8. grein.
  7. Kosnir tveir skoðunarmenn reikninga.
  8. Önnur mál.

3. Ákveðið félagsgjald

Tillaga stjórnar Félags háskólakennara á aðalfundi 16. maí 2024.

Stjórn Félags háskólakennara leggur til að félagsgjald verði óbreytt frá því sem verið hefur, eða 0,55% af heildarlaunum. 

Stjórn Félags háskólakennara leggur til að hlutdeild félagsgjalda í kjaradeilusjóð hækki úr 9,1% í 12% frá 1. júní til 31. desember, 2024.

4. Tillögur um lagabreytingar

Stjórn Félags háskólakennara leggur ekki til lagabreytingar á aðalfundi 2024.

5. Kosin stjórn, sbr. 8. grein.

Samkvæmt bréfi kjörnefndar til stjórnar félagsins, dags. 6. maí 2024.

Formaður til eins árs:

Baldvin M. Zarioh, deildarstjóri  Vísinda- og nýsköpunarsviði.

Meðstjórnendur til tveggja ára: (þrjú sæti)

Ármann Höskuldsson, rannsóknaprófessor Jarðvísindastofnun.

Íris Davíðsdóttir, rekstrarstjóri Raunvísindastofnun.

Kolbeinn Hólmar Stefánsson, dósent í Félagsráðgjafardeild.

Ragna Kemp Haraldsdóttir, dósent í Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild.

Fulltrúi launþega á styrk til eins árs:

Katrín Pálmadóttir Þorgerðardóttir, doktorsnemi á Hugvísindasviði.

6. Kosin kjörnefnd, sbr. 8. grein.

Tillaga stjórnar Félags háskólakennara á aðalfundi 16. maí 2024

Anna Jóna Ingu Ólafardóttir.

Kristín Harðardóttir.

Sverrir Guðmundsson.

7. Kosnir tveir skoðunarmenn reikninga

Tillaga stjórnar Félags háskólakennara á aðalfundi 16. maí 2024

Reynir Örn Jóhannsson.

Sigríður Jónsdóttir.

8. Önnur mál

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is