BHM

Félag háskólakennara er fjórða fjölmennasta aðildarfélag Bandalags háskólamanna (BHM).  BHM er heildarsamtök háskólamenntaðra á vinnumarkaði.  Bandalagið var stofnað 23. október 1958.  BHM er bandalag hagsmunatengdra félaga og/eða stéttarfélaga sem starfa að fag- og vinnumarkaðslegum málefnum félagsmanna sinna.  Aðildarfélög BHM eru samtals 28 með rúmlega 11.000 félagsmenn.

Meðalverkefna BHM er að:

  • Styðja við starf aðildarfélaga.
  • Efla þekkingu félagsmanna á kjara- og réttindamálum.
  • Semja um sameiginleg hagsmuna- og réttindamál skv. umboði.
  • Gæta hagsmuna félagsmanna gagnvart stjórnvöldum.
  • Hafa frumkvæði að umræðu um háskólamenntun og stöðu háskólamenntaðra á vinnumarkaði.

Heimasíða BHM:

BHM mínar síður: https://minarsidur.bhm.is/innskraning

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is