Félagsfundur Félags háskólakennara verður haldinn 1. júní 2021 kl.16:00

Eftirfarandi bráðabrigðaákvæði í lögum félagsins var samþykkt á aðalfundi 2021:   „Þrátt fyrir ákvæði 8. gr. 2. mgr. skal stjórn að loknum aðalfundi Félags háskólakennara á árinu 2021 standa fyrir kosningu um fulltrúa styrkþega í stjórn Félags háskólakennara sem mun sitja fram að aðalfundi 2022, án aðkomu kjörnefndar.“ 

Á aðalfundi Félags háskólakennara 20. maí sl. var borin upp sú tillaga að haldinn verði félagsfundur þar sem fulltrúi hópsins verði kosinn í stað þess að boða til annars aðalfundar, til þess að flýta ferlinu. Tillagan var samþykkt.

Stjórn Félags háskólakennara boðar að þessu tilefni til félagsfundar þriðjudaginn 1. júní nk. kl.16:00 

Fundurinn verður haldinn í salnum Esja II á Hótel Sögu (gengið er inn um aðalinngang upp á 2. hæð).