Header Paragraph

Fréttir af fundi Fh og FPR með frambjóðendum til rektors HÍ þann 6. mars sl

Image

Félag prófessora og Félag háskólakennara áttu góðan og áhugaverðan fund með frambjóðendum til rektors Háskóla Íslands þann 6. mars sl.
Þátttaka á fundinum var afar góð en um 150 manns tóku þátt, um helmingur kom í Odda 101 og aðrir voru á Teams.

Í byrjun fundar fengu frambjóðendur tækifæri til að segja frá sinni sýn á framtíð Háskóla Íslands með áherslu á málefni starfsfólks. Eftir það svöruðu þeir spurningum um vanfjármögnun Háskólans, kjaramál og starfsaðstæður starfsfólks og sögðu að lokum frá sínum áherslum ef þeir næðu kjöri.

Eftirtaldir frambjóðendur mættu á fundinn:
Björn Þorsteinsson, Ingibjörg Gunnarsdóttir, Kolbrún Þ. Pálsdóttir, Magnús Karl Magnússon og Silja Bára Ómarsdóttir.

Myndir af fundinum.