Heimild til frestunar á niðurfellingu orlofs framlengd um ár
Náðst hefur samkomulag milli opinberra launagreiðenda og heildarsamtaka opinberra starfsmanna um að framlengja heimild til frestunar á niðurfellingu orlofs um eitt ár, eða til 30. apríl 2024
Fresturinn er veittur vegna utanaðkomandi aðstæðna á samningstímanum. Orlofið getur að hámarki verið 60 dagar. Eftir 30. apríl 2024 fellur eldra orlof niður.
Vinnuveitandi ber ábyrgð á að skipuleggja orlofstöku starfsfólks síns að teknu tilliti til óska þess eins og unnt er vegna starfseminnar.
Því þurfa atvinnurekendur að:
- Upplýsa starfsfólk um stöðu orlofs
- Hvetja starfsfólk til að senda inn orlofsóskir hafi það nú þegar ekki verið gert
- Ákveða sumarorlof starfsfólks fyrir 31. mars nema sérstakar aðstæður hamli
- Gera tímasettar áætlanir um úttekt uppsafnaðs orlofs hjá þeim sem það á við
- Eftir sem áður er lögð áhersla á mikilvægi þess að starfsfólk taki orlof sér til hvíldar og endurnæringar en safni því ekki upp
Hægt er að lesa nánar frestunina á vef BHM