Header Paragraph
Norrænn fundur í Vaasa 2025
Image

Nú á dögunum var hluti af stjórn Félags háskólakennara á fundi með norrænum kollegum í Vaasa, Finnlandi. Fundinn sóttu einnig félagar okkar frá Félagi Háskólakennara á Akureyri og Félagi Prófessora við ríkisháskóla.
Helstu umræðuefnin voru m.a. þróun launa í löndunum og voru mörg landanna að glíma við sambærileg vandamál eins og niðurskurð til háskólastigsins og aukningu nemenda án þess að til aukningar starfsfólks kæmi.
Einnig var mikið rædd um nauðsyn þess að standa vörð um akademískt frelsi nú sem aldrei fyrr og var vísað til ástandsins í Bandaríkjunum í því samhengi.
Það er alltaf gott að hitta vini okkar á Norðurlöndunum, deila reynslu og ráðum og fá nýtt sjónarhorn á hlutina.
Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

+0