Ályktun stjórnar Félags háskólakennara 12. apríl 2017

Ályktun stjórnar Félags háskólakennara um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir tímabilið 2018-2022

Stjórn Félags háskólakennara lýsir yfir miklum vonbrigðum með fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir tímabilið 2018 – 2022 þar sem hún viðheldur undirfjármögnun háskólastigsins. Til þess verður að líta að stjórnvöld hafa ítrekað gefið fyrirheit um að fjármögnun háskólastigsins á Íslandi verði í takt við það sem gerist í nágrannalöndum okkar.  Með fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar er ekki verið að efna þessi fyrirheit.

Fyrirliggjandi fjármálaáætlun er sérstaklega til þess fallin að grafa undan starfsemi Háskóla Íslands en á síðustu árum hefur skólinn mátt þola umtalsverðan niðurskurð. Ef fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar stendur óbreytt verður ekki möguleiki á auknu framlagi til kennslu og rannsókna, sem hefur mátt þola verulegan niðurskurð síðustu ár

Nái fjármálaáætlunin óbreytt fram að ganga er hætta á að Háskóli Íslands

·         dragist aftur úr í alþjóðlegum samanburði háskóla

·         þurfi að minnka námsframboð og fresta nauðsynlegri þróun kennsluhátta

·         þurfi að hætta við brýna uppbyggingu innviða rannsókna og nýsköpunar.

Stjórn Félags Háskólakennara skorar á ríkisstjórnina að endurskoða fjárhagsáætlun fyrir 2018-2022 með það í huga að hækka töluvert fjárframlag til háskólastigsins.

Fjárfesting í menntun er fjárfesting í framtíðinni. 

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is