Félagsmenn í Félagi háskólakennara eiga aðild að Orlofssjóði BHM, Vacation Fund
Vefslóð orlofssjóðs: http://www.orlof.is/bhm/
Sjóðfélögum Orlofssjóðs BHM standa til boða fjöldi orlofshúsa og íbúða bæði innanlands og erlendis. Þá gefst sjóðfélögum einnig kostur á afsláttarbréfum fyrir flug og gistingu, útlilegukort sem gildir á tjaldstæðum viðsvegar um landið, veiðikort og golfkort. Allar upplýsingar eru á vefsíðu orlofssjóðs BHM en þar má einnig finna bókunarvef þar sem hægt er að bóka.
Orlofssjóður BHM hefur það markmið að auðvelda sjóðfélögum að njóta orlofs og í því skyni á sjóðurinn og rekur orlofshúsnæði. Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins hefur sjóðurinn einnig það hlutverk að semja um aðra orlofsmöguleika fyrir sjóðfélaga.
Lífeyrisþegar: Hægt er að viðhalda réttindum í sjóðnum ævilangt við starfslok með þvi að greiða svokallað ævigjald kr. 19.234 (mars 2019).