Aðalfundur Félags háskólakennara 2022

Aðalfundur 2022

Félags háskólakennara, félag háskólamenntaðra starfsmanna Háskóla Íslands og tengdra stofnana,

verður haldinn miðvikudaginn 25. maí frá kl. 12 - 14

í Öskju stofa N-132

Dagskrá:

  1. Lögð fram ársskýrsla.
  2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins.
  3. Ákveðið félagsgjald og hlutdeild félagsgjalda í kjaradeilusjóð sbr. 3. gr. reglna um sjóðinn.
  4. Tillögur um lagabreytingar, ef fram koma.
  5. Kosin stjórn, sbr. 8. grein.
  6. Kosin kjörnefnd, sbr. 8. grein.
  7. Kosnir tveir skoðunarmenn reikninga.
  8. Önnur mál.

8. grein laga félagsins er svohljóðandi:

Stjórn félagsins skal skipuð átta mönnum, formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera, þremur meðstjórnendum auk eins meðstjórnanda til viðbótar sem er fulltrúi launþega á styrk sbr. 4. tl., 3. gr. þeir eru kjörnir skriflega, ef þess er óskað. Formann skal kjósa sérstaklega, en að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum. Stjórnarkjöri skal haga þannig, að árlega sé kosinn formaður, þrír stjórnarmenn úr hópi félagsmanna sbr. tl. 1 – 3, 3. gr. og einn fulltrúi launþega á styrk sbr. tl. 4, gr. 3. Formaður er kjörinn til eins árs, fulltrúi launþega á styrk til eins árs og aðrir stjórnarmenn til tveggja ára.

Á aðalfundi skal kjósa þriggja manna kjörnefnd, sem starfar til loka næsta aðalfundar. Tilkynningar um framboð til stjórnar skulu berast kjörnefnd ekki síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund. Hafi ekki borist næg framboð skal kjörnefnd hlutast til um að afla nauðsynlegs fjölda framboða. Framboð til stjórnar sem kosið er um á aðalfundi skal birtast með fundarboði til aðalfundar.“

Stjórn Félags háskólakennara óskar eftir framboðum til stjórnar og minnir á að tilkynningar um framboð skulu berast kjörnefnd eigi síðar en 2 vikum fyrir aðalfund eða fyrir miðvikudaginn 11. maí nk.

Í kjörnefnd sitja:

Sverrir Guðmundsson, verkstj. Vísinda- og nýsköpunarsviði, sími 525-4352, sverrirg@hi.is

Kristín Harðardóttir, forstöðumaður Menntavísindastofnunar, sími 525-4165, krishar@hi.is

Sigríður Jónsdóttir, fræðimaður Raunvísindastofnun, sími 525-4802, sigga@hi.is

Vakin er athygli á því að lagabreytingatillögum skal skilað til stjórnar eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund (11. maí nk.).

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is