Starfsþróunarsjóður Félags háskólakennara og Endurmenntun HÍ hafa gert samning þar sem sjóðfélögum býðst að sækja eftirfarandi námskeið hjá Endurmenntun HÍ þeim að kostnaðarlausu. Námskeiðin sem um er að ræða eru sérstaklega valin þannig að sem flest geti nýtt sér þau til að efla sig í starfi. Þátttaka á þessum námskeiðum kemur ekki til frádráttar á styrkupphæð einstaklinga.

Afsláttarkóðinn hefur verið sendur í tölvupósti til félagsfólks.  Vinsamlegast hafið samband við helgabirna@hi.is, ef eitthvað er óljóst.

Afsláttarkóðinn gildir aðeins á þau námskeið sem birt eru hér fyrir neðan. Öðrum en sjóðfélögum Starfsþróunarsjóðs Félags háskólakennara er með öllu óheimilt að nota afsláttarkóðann. Ef afsláttarkóðinn er notaður af einstaklingi sem ekki hefur aðild að Starfsþróunarsjóðnum verður námskeiðsgjald innheimt með greiðsluseðli á viðkomandi einstakling.

Athugið að nýjum námskeiðstímum er reglulega bætt við, svo endilega fylgist vel með þessari síðu.

Sjá leiðbeiningar og öll námskeið HÉR:

Gervigreind fyrir kennara
Stað- og fjarnámskeið 2. - 16. febrúar (13:00 - 16:30/14:00 - 17:00/14:30 - 16:00)

Hagnýtar gervigreindarlausnir
Staðnámskeið 4. & 5. febrúar (13:00 - 16:30)
Staðnámskeið 11. & 12. febrúar (13:00 - 16:30)
Staðnámskeið 16. & 17. febrúar (13:00 - 16:30)
Staðnámskeið 10. & 11. mars (13:00 - 16:30)
Staðnámskeið 13. mars (8:30 - 16:00)

Verkefnastjórnun - fyrstu skrefin
Fjarnámskeið 4. febrúar (8:30 - 12:30) *FULLBÓKAÐ* (Biðlistaskráning í tölvupósti)
Fjarnámskeið 17. febrúar (8:30 - 12:30)
Staðnámskeið 12. mars (12:30 - 16:30)

Hagnýtar gervigreindarlausnir - framhaldsnámskeið
Staðnámskeið 5. febrúar (8:30 - 12:00)
Staðnámskeið 10. febrúar (13:00 - 16:30)

Hámörkum árangur með gervigreind - greining og ákvarðanir
Staðnámskeið 12. & 13. febrúar (8:30 - 12:30) *FULLBÓKAÐ* (Biðlistaskráning í tölvupósti)
Staðnámskeið 2. & 3. mars (8:30 - 12:30)

Microsoft Power BI
Staðnámskeið 17. og 19. febrúar (12:30 - 16:30)
Staðnámskeið 14. og 16. apríl (12:30 - 16:30)

Fagleg hegðun og samskipti á vinnustað
Staðnámskeið 18. febrúar (9:00 - 12:00)

Lykilatriði breytingastjórnunar - grunnur
Staðnámskeið 20. febrúar (9:00 - 12:00)

Jákvæð vinnustaðamenning skiptir máli!
Staðnámskeið 25. febrúar (9:00 - 12:30)

Verkefnastjórnun - verkefnisáætlun
Fjarnámskeið 25. & 27. febrúar (8:30 - 12:30)
Staðnámskeið 24. & 26. mars (12:30 - 16:30)

Rekstraráætlun - gerð, uppbygging, gervigreind
Staðnámskeið 26. & 27. febrúar (8:30 - 12:30)

Verkfærakista jákvæðrar sálfræði
Staðnámskeið 26. febrúar (19:00 - 22:00)
Staðnámskeið 14. apríl (19:00 - 22:00)

Af krafti inn í starfslokin
Staðnámskeið 5. - 19. mars (16:15 - 19:15) og 26. mars (16:15 - 20:15)

Excel - Pivot
Staðnámskeið 9. & 10. mars (8:30 - 12:30)
Staðnámskeið 29. & 30. apríl (8:30 - 12:30)

Stjórnun fyrir nýja stjórnendur
Staðnámskeið 18. & 19. mars (13:00 - 16:30)

Greindu rót vandans með gervigreind
Staðnámskeið 18. & 19. mars (12:30 - 16:00)

Sáttamiðlun fyrir stjórnendur
Staðnámskeið 25. mars (12:30 - 16:30)

Aðferðafræði markþjálfunar fyrir stjórnendur
Staðnámskeið 8. apríl (13:00 - 16:00) & 29. apríl (13:00 - 15:00)

Að taka samtalið
Staðnámskeið 15. apríl (12:30 - 16:30)

Share