Hámark yfirvinnu kennara og sérfræðinga á mánuði er eins og fram kemur í töflunni hér að neðan, starfsmanni er þó heimilt í samráði við yfirmann að kenna tímabundið umfram yfirvinnuþak og flytja yfirvinnu sem samsvarar allt að eins misseris heimilaðri yfirvinnu á milli missera.
Launaflokkar: |
L07 | L08 | L09 | L10 | L11 | L12 | L14 | L16 | L17 | L18 |
Tímar að hámarki: | 58 | 56 | 54 | 52 | 50 | 48 | 45 | 39 | 35 | 35 |
Tímakaup fyrir yfirvinnu kennara og sérfræðinga er 1,0385% af mánaðarlaunum í viðkomandi launaflokki með álagi - en þó ekki hærri en samkvæmt yfirvinnutaxta í launaflokki L09 án álags (1. mars 2013 er upphæðin 3.932 kr.). Þó er heimilt að greiða 1,0385% af mánaðarlaunum viðkomandi fyrir allt að 200 klst. á ári af sjálfsaflafé.