Yfirvinna skv. kafla 4 í stofnanasamningi, dags. 17. nóvember 2015
Hámark yfirvinnu kennara (sbr. tl. 1) og sérfræðinga (sbr. tl. 2) á mánuði er eins og fram kemur í töflu 3, starfsmanni er þó heimilt í samráði við yfirmann að kenna tímabundið umfram yfirvinnuþak og flytja yfirvinnu sem samsvarar allt að eins misseris heimilaðri yfirvinnu á milli missera.
Tafla 3, yfirvinnuþak
Launaflokkar: |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
Yfirvinna alls á ári: |
696 |
696 |
672 |
648 |
624 |
540 |
540 |
540 |
468 |
420 |
420 |
Yfirvinnuþakið nær til hámarks fjölda yfirvinnustunda á ári, þar af getur þjónustuyfirvinna numið að hámarki 200 klst. Tímakaup fyrir þjónustuyfirvinnu 1,0385% af viðkomandi mánaðarlaunum. Tímakaup fyrir aðra yfirvinnu, svo sem yfirvinnu vegna kennslu, er fastur taxti 0,615% af launaflokki 11-0 (kr. 4.908), þó ekki lægri upphæð en 0,615% af mánaðarlaunum viðkomandi.