Yfirvinnuþak kennara og sérfræðinga

Yfirvinna skv. kafla 4 í stofnanasamningi, dags. 17. nóvember 2015

Hámark yfirvinnu kennara (sbr. tl. 1) og sérfræðinga (sbr. tl. 2) á mánuði er eins og fram kemur í töflu 3, starfsmanni er þó heimilt í samráði við yfirmann að kenna tímabundið umfram yfirvinnuþak og flytja yfirvinnu sem samsvarar allt að eins misseris heimilaðri yfirvinnu á milli missera.

Tafla 3, yfirvinnuþak

Launaflokkar:

3

4

5

6

7

8

9

10

11

12

13

Yfirvinna alls á ári: 

696

696

672

648

624

540

540

540

468

420

420

 

Yfirvinnuþakið nær til hámarks fjölda yfirvinnustunda á ári, þar af getur þjónustuyfirvinna numið að hámarki 200 klst. Tímakaup fyrir þjónustuyfirvinnu 1,0385% af viðkomandi mánaðarlaunum.  Tímakaup fyrir aðra yfirvinnu, svo sem yfirvinnu vegna kennslu, er fastur taxti 0,615% af launaflokki 11-0 (kr. 4.908), þó ekki lægri upphæð en 0,615% af mánaðarlaunum viðkomandi.

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is