Upplýsingar um hlé á kjaraviðræðum í sumar og eingreiðsla

Gert hefur verið hlé á kjaraviðræðum aðildarfélaga BHM við samninganefnd ríkisins (SNR).

Kjarasamningar við ríkið losnuðu 1. apríl sl. Í lok júní lagði samninganefnd ríkisins til að gert yrði hlé á kjaraviðræðum í júlí og að viðræðuáætlanir væru endurskoðaðar með tilliti til þess. Formenn BHM félaganna hafa nú undirritað endurskoðaðar viðræðuáætlanir við SNR. Samkvæmt þeim er stefnt að því að kjarasamningar náist eigi síðar en 15. september 2019. 

Vegna þeirra tafa sem orðið hafa á viðræðum við SNR mun ríkið greiða starfsfólki sínu eingreiðslu að upphæð kr. 105.000 þann 1. ágúst næstkomandi. Greiðslan er hluti af kostnaðarmati væntanlegs kjarasamnings en með henni eru þó ekki lagðar línur um launahækkanir í væntanlegum kjarasamingum aðildarfélaganna.