Reglur um starfsskyldur

REGLUR
um breytingu á reglum nr. 605/2006 um starfsskyldur kennara og sérfræðinga við Háskóla Íslands.

1. gr.

1. töluliður undir bókstafslið A í I. lið töluliðar 3.2 í 3. gr. breytist og orðast svo:

Lektorar og dósentar í fullu starfi með færri en 10 rannsóknastig á undangengnu ári eða að meðaltali síðustu þrjú eða fimm ár fá hlutfallslega aukningu í kennsluskyldu sbr. töflu A. Prófessorar í fullu starfi með færri en 10 rannsóknastig á undangengnu ári eða að meðaltali síðustu þrjú eða fimm ár fá hlutfallslega aukningu í kennsluskyldu sbr. töflu B. Aðjúnktar í fullu starfi með færri en 7 rannsóknastig á undangengnu ári eða að meðaltali síðustu þrjú eða fimm ár fá á sama hátt hlutfallslega aukningu í kennsluskyldu sbr. töflu C.

2. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, eru settar samkvæmt heimild í 5. mgr. 15. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 11. mars 2015.

Kristín Ingólfsdóttir.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 30. mars 2015

 

 

Fylgiskjal I með stofnanasamningi Háskóla Íslands við Félag Háskólakennara

Reglur um starfsskyldur kennara og sérfræðinga við Háskóla Íslands.
Samþykktar í háskólaráði 7. apríl 2006

1. gr.
Starfsskyldur

Starfsskyldur kennara við Háskóla Íslands skiptast í þrjá meginþætti: rannsóknir, kennslu og stjórnun. Starfsskyldur starfsmanna sem eingöngu eru ráðnir til vísinda- og fræðistarfa skiptist í rannsóknir, stjórnun og önnur störf.

2. gr.
Skilgreining starfsþátta.

2.1   Kennsla.
Kennsla við Háskóla Íslands felur í sér þjálfun nemenda til að sinna sjálfstætt vísindalegum verkefnum og takast á við margvísleg störf í þjóðfélaginu. Kennslunni er ætlað að þroska nemendur, temja þeim ögun í vinnubrögðum, auka þekkingu þeirra og gera þeim kleift að beita þekkingunni á sjálfstæðan skapandi og gagnrýninn hátt og til öflunar nýrrar þekkingar. Rannsóknum og kennslu skal fléttað saman á öllum stigum náms, eftir því sem kostur er.

Nám til prófgráðu við Háskóla Íslands skiptist í einstök námskeið sem saman mynda eina heild. Deildir bera ábyrgð á námi og veitingu prófgráða. Deild ákveður því hvaða námskeið eru kennd og hver kennir þau. Kennarar njóta kennslufrelsis innan þess ramma sem deild setur. Þeir ákveða sjálfir námsefni, efnistök og kennsluhætti. Þetta mikilvæga frelsi felur í sér skyldur og ábyrgð gagnvart fræðunum, gagnvart stúdentum og samstarfsfólki.

2.2   Rannsóknir.
Kennarar og sérfræðingar njóta akademísks rannsóknafrelsis, en í því felst að þeir velja sér sjálfir viðfangsefni á fræðasviði sínu og þær aðferðir sem þeir beita. Deild eða stofnun eftir atvikum skilgreinir fræðasvið hvers kennara og sérfræðings. Rannsóknafrelsi felur í sér ábyrgð og skyldur. Niðurstöður rannsókna skulu kynntar á vísindalegum vettvangi sem gerir strangar fræðilegar kröfur. Þær skulu einnig kynntar almenningi eftir því sem kostur er. Kennarar og sérfræðingar skulu leitast við að afla tekna úr rannsóknasjóðum og frá öðrum aðilum til rannsókna sinna. Kennarar og sérfræðingar skulu árlega gera grein fyrir rannsóknum sínum og niðurstöðum þeirra.
       
Heimilt er í ráðningarsamningi að fela starfsmönnum sem eingöngu eru ráðnir til vísinda- og fræðistarfa, sbr. 4. gr., að sinna þjónusturannsóknum á vegum stofnunar eða deildar. Þjónusturannsóknir geta komið í stað hluta almennrar rannsóknaskyldu og um þjónusturannsóknir gilda ekki ákvæði um rannsóknafrelsi.

2.3   Stjórnun.

  • Í fyrsta lagi felur stjórnun í sér verkefni í tengslum við kennslu og rannsóknir viðkomandi kennara eða sérfræðings.
  • Í öðru lagi felur stjórnun í sér verkefni á vegum deildar, skorar eða námsleiðar sem mönnum er falið eða þeir eru kjörnir til að sinna tímabundið og um gilda ákvæði sameiginlegra reglna Háskóla Íslands.
  • Í þriðja lagi felur stjórnun í sér verkefni á vegum háskólaráðs eða rektors, sem að jafnaði er greitt fyrir sérstaklega eða umbunað fyrir með öðrum hætti.

3. gr.
Skipting starfsskyldna milli starfsþátta.

Ákvæði þessarar greinar gilda um háskólakennara og sérfræðinga. Greinin á þó ekki við um þá sem gegna starfi deildarforseta.
 
3.1   Almennar starfsskyldur háskólakennara og sérfræðinga.

  1. Starfsskyldur prófessora skiptast almennt í 48% kennslu, 40% rannsóknir og 12% stjórnun.

  2. Starfsskyldur lektora og dósenta í hálfu starfi eða meira skiptast almennt í 51% kennslu, 43% rannsóknir og 6% stjórnun.

  3. Starfsskyldur lektora og dósenta í minna en hálfu starfi skiptast almennt í 69% kennslu, 23% rannsóknir og 8% stjórnun.

  4. Starfsskyldur aðjúnkta skiptast almennt í 65% kennslu, 4% stjórnun og 31% rannsóknir.

  5. Starfsskyldur sérfræðinga, fræðimanna og vísindamanna skiptast í tvo flokka, annars vegar er um að ræða 60% - 80% rannsóknaskyldu og hins vegar 40%. Aðrir starfsþættir sérfræðinga, fræðimanna og vísindamanna eru 20% - 60% eða eftir því sem nánar er kveðið á um í starfslýsingu og ráðningarsamningi.

3.2   Undantekningar frá almennum starfsskyldum.

I.  Hlutfallsleg aukning kennsluskyldu.

  1. Hlutfallsleg aukning kennsluskyldu umfram almennar starfsskyldur byggir á meðaltalsrannsóknavirkni síðustu þriggja eða fimm ára eftir því hvort hagstæðara er fyrir viðkomandi.

  1. Lektorar, dósentar og prófessorar í fullu starfi með færri en 10 rannsóknastig að meðaltali síðustu þrjú eða fimm ár fá hlutfallslega aukningu í kennsluskyldu sbr. töflur A og B. Aðjúnktar í fullu starfi með færri en 7 rannsóknastig að meðaltali síðustu þrjú eða fimm ár fá á sama hátt hlutfallslega aukningu í kennsluskyldu sbr. töflu C.

  2. Taka skal tillit til starfshlutfalls og rannsóknaskyldu í hverju tilviki þegar vikið er frá almennum reglum.

  3. Taka skal tillit til breytinga á starfsskyldum vegna töku fæðingarorlofs, veikinda eða slysa, sbr. gildandi reglur þar um.

  4. Ekki skal auka hlutfall kennsluskyldu fyrstu fimm árin í starfi hjá Háskóla Íslands.

  5. Ekki skal auka hlutfall kennsluskyldu þeirra sem eru 55 ára og eldri, um hana gilda reglur háskólaráðs um aldurs- og árangurstengda tilfærslu starfsþátta lektora, dósenta og prófessora við 55 og 60 ára aldur frá 7. nóvember 2003.

  Hlutfallslega aukin kennsluskylda samkvæmt lið A er eins og fram kemur í töflum A, B og C þegar um fullt starf er að ræða.

 

Tafla A
Rannsóknarvirkni, 3 ára meðaltal
Prófessorar
 Rannsóknarstig Kennsluskylda
 9 49% 
 8 50%
 7 51% 
 6 52%
 5 53%
 4 54%
 3 55%
 2 56%
 1 57% 
 0 58% 
 
Tafla B
Rannsóknarvirkni, 3 ára meðaltal
Lektorar og dósentar, fullt starf
 Rannsóknarstig Kennsluskylda
 9 52%
 8 53% 
 7 54%
 6 55%
 5 56%
 4 57% 
 3 58%
 2 59%
 1 60% 
 0 61% 
 
Tafla C
Rannsóknarvirkni, 3 ára meðaltal
Aðjunktar, fullt starf
 Rannsóknarstig Kennsluskylda
66% 
67% 
68% 
69% 
70% 
1 71% 
72% 

 

 

 

  1. Þrátt fyrir lið A getur kennari óskað eftir því að auka kennsluskyldu sína á kostnað rannsóknaskyldu. Þá getur deildarforseti við sérstakar aðstæður, t.d. vegna tímabundins álags, skorts á kennslukrafti, veikinda eða fjarvista af öðrum toga, ákveðið í samráði við kennara að hann auki kennsluskyldu sína tímabundið á kostnað rannsóknaskyldu. Breytingar af þessu tagi skulu ekki hafa í för með sér að laun verði lægri en ef aukin kennsla væri unnin í yfirvinnu. Ennfremur getur rektor kallað starfsmann tímabundið til sérstakra starfa og breytast þá starfsskyldur hans eftir samkomulagi.

Um hlutfallslega aukna kennsluskyldu skv. liðum A og B gildir eftirfarandi:

  • Stjórnunarskylda helst óbreytt en rannsóknaskylda minnkar að sama skapi og kennsluskyldan eykst.

  • Yfirvinnuþak vegna kennslu breytist ekki.

  • Kennslustigum fjölgar um 0,5 stig á ári fyrir hvern hundraðshluta sem kennsluskyldan eykst af heildarvinnuskyldu.

II.  Hlutfallslega aukin rannsóknaskylda.

  1. Almenn regla:  Óski kennari eftir að auka hlutfall rannsóknaskyldu sinnar á kostnað kennsluskyldu skal almenna reglan vera sú að hann finnur kennara í sinn stað og greiðir kennsluna af sértekjum/sjálfsaflafé.

  2. Sérregla: Telji deildarforseti/deild mikilvægt að tilteknum kennara sé gert kleift að auka hlutfall rannsóknaskyldu sinnar getur viðkomandi deild samþykkt að bera kostnaðinn vegna þess.

  3. Kennari sem eykur við sig hlutfall rannsóknarskyldu samkvæmt 1. lið getur ekki kennt í yfirvinnu nema um sé að ræða leiðbeiningu við meistara- og/eða doktorsritgerð.
     

4. gr.

Starfsmenn sem eingöngu eru ráðnir til vísinda- og fræðistarfa.

Háskóladeild eða stofnun ákveður skiptingu starfsskyldna milli rannsókna, stjórnunar og annarra starfa fyrir sérfræðinga, fræðimenn og vísindamenn. Kveða skal á um skiptingu starfsskyldna í ráðningarsamningi. Ef við á skal tiltaka í ráðningarsamningi hve hátt hlutfall rannsóknaskyldunnar eru þjónusturannsóknir á vegum stofnunar eða deildar, án rannsóknafrelsis, sbr. 2. gr.

 

5. gr.

Rannsóknamisseri.

 Til þess að eiga kost á rannsóknamisseri skulu samanlögð stig vegna kennslu og rannsókna nema að minnsta kosti 17 stigum á ári þegar um fullt starf er að ræða og þar af skulu a.m.k. 5 stig vera vegna rannsókna. Miðað er við meðaltal síðustu þriggja eða fimm ára eftir því hvort hagstæðara er fyrir viðkomandi. Skilyrði er að rannsóknaskýrslum sé skilað árlega.
Að öðru leyti gilda fyrri reglur um tímalengd rannsóknamissera og þann tíma er skal líða að lágmarki á milli rannsóknamissera.

 

6. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglur þessar, sem háskólaráð hefur samþykkt, eru settar á grundvelli 11. gr. laga um Háskóla Íslands, nr. 41/1999 og 32. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands, nr. 458/2000. Reglur þessar öðlast gildi 1. janúar 2007 og fellur þá úr gildi samþykkt háskólaráðs um vinnuskyldu fastra kennara frá 8. september 1988. Nánar skal kveða á um framkvæmd reglna þessara í verklagsreglum sem háskólaráð staðfestir.
 

Ákvæði til skýringar

 Með stjórnun í tengslum við rannsóknir og kennslu, sbr. 2. gr., er t.d. átt við samskipti við nemendur, sem þó ekki tengjast beint kennslu viðkomandi kennara, undirbúning kennsluskrár, þátttöku í skorarfundum og deildarfundum, auk setu í nefndum á vegum deildarinnar. Gert er ráð fyrir því að deildarforseti geti, í umboði deildarfundar, falið einstökum kennurum stjórnunarverkefni á vegum deildar. Dæmi um verkefni á vegum deildar sem menn eru kjörnir til að sinna tímabundið eru starf deildarforseta, varadeildarforseta, skorarformanns og forstöðumanns stofnunar.
   
Fram kemur í 4. gr. að deild eða stofnun ákveði skiptingu starfsskyldna sérfræðinga milli rannsókna, stjórnunar og annarra starfa. Með öðrum störfum er hér átt við þjónusturannsóknir, sbr. gr. 2.2, og kennslu. Í 32. gr. sameiginlegra reglna Háskóla Íslands kemur fram að deild getur þegar sérstaklega stendur á falið starfsmanni sem eingöngu er ráðinn til vísinda- og fræðistarfa að sinna ákveðinni kennslu tímabundið.

Þú ert að nota: brimir.rhi.hi.is